ferðaskrifstofa 611 8811

Páskar á Sikiley

1.–11. apríl 2026

Uppselt

Töfrandi blanda náttúrufegurðar, menningar og matar. Fararsnið leggur áherslu á að ferðast í litlum hópum og sameiginlegar máltíðir á vel völdum stöðum eru innifaldar í verði. Gisting er valin af kostgæfni og hótel ávallt staðsett miðsvæðis.

Páskar á Sikiley

Vikan

11 dagar · Taormina, Siracusa og Palermo — þrjú 4★ hótel · 10 nætur

  1. 1 Miðvikudagur 1. apríl Flogið til Catania og ekið til Taormina
    Smá prufa ´herna
    • 07:50 Brottför með Icelandair til Rómar með flugi FI 562, þar sem við millilendum. Þaðan höldum við áfram til Catania
    • 18:30 Lending í Catania. Rúta bíður og flytur okkur á hótel í Taormina
    • Innritun á Eurostar Hotel Taormina
    • 21:00 Komuskál og pinnamatur innifalið
  2. 2 Fimmtudagur 2. apríl Taormina og gríska leikhúsið yfir hafinu
    • 09:30 Höldum af stað gangandi frá hóteli og hittum staðarleiðsögumann sem leiðir okkur um Taormina, þekktasta fyrir stórfenglegt grísk-rómverskt útileikhús með ægifögru útsýni til hafs og til Etnu. Í bænum er margt að sjá, t.d. Corvaja-höllina
    • 13:00 Hádegisverður að hætti heimamanna með vatni, víni og kaffi innifalið
    • Kvöldið frjálst
  3. 3 Föstudagur 3. apríl Randazzo við rætur Etnu og vínbúgarður
    • Morgunverður á hóteli
    • 09:30 Höldum með rútu og byrjum daginn á að heimsækja Randazzo, sjarmerandi miðaldabæ við rætur Etnu, þar sem við fáum frjálsan tíma til að rölta um þröngar göturnar
    • Þaðan liggur leiðin að vínbúgarði þar sem við kynnumst víngerðinni og bragðum á afurðum þessa gjöfula landsvæðis
    • Hádegisverður beint frá býli með vatni, víni og kaffi innifalið
    • Kvöldið frjálst
  4. 4 Laugardagur 4. apríl Flutt til Siracusa og gengið um Ortigia
    • Morgunverður og útritun af hóteli, farangri komið í geymslu. Morguninn frjáls
    • 13:00 Rúta flytur okkur til Siracusa þar sem við gistum næstu þrjár nætur á Ortigia-eyjunni
    • 15:00 Innritun á Grand Hotel Ortigia
    • 16:30 Hittumst í anddyri hótelsins og göngum af stað með staðarleiðsögumanni sem kynnir okkur fyrir þessari einstöku borg þar sem forn-Grikkir réðu ríkjum öldum saman, og síðar Rómverjar, Arabar og fleiri þjóðir
    • 19:30 Kvöldverður með vatni og víni á veitingastað hótelsins, þaðan sem er fallegt útsýni yfir Siracusa innifalið
  5. 5 Sunnudagur 5. apríl Páskadagur — barokkborgin Noto og hátíðarhöldin
    • Morgunverður á hóteli
    • 09:00 Rúta flytur okkur til hinnar glæstu borgar Noto, einnar af sjö borgum sem endurreistar voru í framúrskarandi barokkstíl eftir stóran jarðskjálfta árið 1693. Við röltum um borgina með staðarleiðsögumanni og fáum frjálsan tíma til að næra okkur
    • 13:00 Tökum þátt í páskahátíð Notobúa í miðbænum, sem er skemmtileg upplifun
    • 16:00 Áætluð koma aftur á hótel. Kvöldið frjálst í Siracusa
  6. 6 Mánudagur 6. apríl Frjáls dagur í Siracusa Frjáls
    • Frjáls dagur í Siracusa
  7. 7 Þriðjudagur 7. apríl Casale-höllin og yfir á vesturströndina til Palermo
    • Morgunverður og útritun
    • 08:30 Þennan dag færum við okkur frá austurströnd Sikileyjar yfir á vesturströndina og endum daginn í Palermo þar sem við dveljum næstu fjórar nætur
    • Um morguninn stoppum við í Piazza Armerina, hittum leiðsögumann og skoðum Villa Romana del Casale frá 3.–4. öld e.Kr. Höllin lá grafin og gleymd um aldir eftir aurskriðu; við uppgröft komu í ljós mósaíkmyndir sem þekja um 3.500 fm gólfflöt. Á heimsminjaskrá UNESCO frá 1997
    • Að heimsókn lokinni fáum við frjálsan tíma til að slaka á og fá hádegishressingu
    • 16:00 Áætluð koma til Palermo og innritun á Hótel Eurostars Centrale Palace á besta stað í gamla bænum. Þar sem rútur mega ekki keyra um miðborgina verður farangrinum komið á hótelið í minni bíl en við förum fótgangandi smá spöl
    • 19:30 Sameiginlegur kvöldverður á veitingastað hótelsins, sem skartar bæði góðum mat og einstöku útsýni yfir borgina innifalið
  8. 8 Miðvikudagur 8. apríl Palermo með staðarleiðsögn og götubitar á matarmarkaði
    • Morgunverður á hóteli
    • 09:30 Höldum af stað fótgangandi frá hóteli ásamt staðarleiðsögumanni til að skoða Palermo. Við komum víða við, t.d. í Dómkirkjunni og Palatína kapellunni í höll Normanna, og skoðum skammarlega gosbrunninn „Fontana della Vergogna“
    • Endum ferðina á líflegum matarmarkaði þar sem við bragðum á nokkrum af vinsælustu götubitum borgarbúa innifalið
    • Kvöldið frjálst
  9. 9 Fimmtudagur 9. apríl Frjáls dagur í Palermo Frjáls
    • Morgunverður á hóteli
    • Frjáls dagur í Palermo
  10. 10 Föstudagur 10. apríl Mósaíkin í Monreale og hafnarbærinn Cefalú
    • Morgunverður á hóteli
    • 09:30 Við tökum stefnuna á bæinn Monreale með viðkomu í stórkostlegri dómkirkjunni með sínum einstöku mósaíkmyndum, þar sem gotneskur, býsanskur og arabískur stíll renna saman
    • Frá Monreale höldum við áfram til Cefalú, heillandi hafnarbæjar sem valinn var einn af fallegustu bæjum Ítalíu
    • 13:00 Hádegisverður að hætti heimamanna úr hráefni beint úr hafinu, með vatni, víni og kaffi innifalið
    • Frjáls tími í Cefalú eftir hádegisverð
    • 17:30 Áætluð koma heim á hótel. Frjálst kvöld í Palermo
  11. 11 Laugardagur 11. apríl Heimferð frá Palermo
    • Morgunverður á hóteli og útritun
    • 08:00 Förum með litlum skutlum á flugvöllinn í Palermo
    • 11:15 Flug AZ 1782 til Rómar
    • 18:40 Lending í Keflavík

Hvað býðst þér

  • Gist á 4★ hótelum með morgunverði, staðsettum miðsvæðis
  • Morgunflug með Icelandair til Rómar og þaðan til Catania með Italian Airways, flogið heim frá Palermo í gegnum Róm. Farangur innritaður alla leið og íslenskur fararstjóri fer með hópnum frá Íslandi
  • Sælkeramáltíðir á völdum veitingastöðum með drykkjum þar sem við kynnumst matarmenningu hvers svæðis
  • Einstök blanda af sögu, byggingarlist, matarmenningu og náttúrufegurð
  • Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og lausar stundir til að njóta að vild
  • Allt sem nefnt er í dagskrá er innifalið í verði, nema annars sé getið

Innifalið

  • Flug með Icelandair til/frá Róm og flug með ITA til Catania og heim frá Palermo
  • Skattar og lendingargjöld
  • Töskur og handfarangur
  • Rútuakstur frá og til flugvallar á Sikiley
  • Allur annar rútuakstur samkvæmt dagskrá
  • Gisting á fjögurra stjörnu hótelum í tíu nætur
  • Morgunverður í tíu daga
  • Fordrykkur og smáréttahlaðborð á komudegi
  • Tveir kvöldverðir með borðvíni, vatni og kaffi
  • Fjórir hádegisverðir með borðvíni, vatni og kaffi
  • Heimsókn í vínkjallara
  • Matarmarkaðsrölt með staðarleiðsögumanni og smakk á vinsælustu götubitum Palermóbúa
  • Allar skoðunarferðir sem nefndar eru í dagskrá
  • Aðgöngumiðar í grísk-rómverska leikhúsið í Taormina, Casale-höllina í Piazza Armerina, dómkirkjuna í Monreale og Palatína kapelluna í Normannahöllinni í Palermo
  • Innlendir leiðsögumenn
  • Íslensk fararstjórn allan tímann

Ekki innifalið

  • Þjórfé þar sem við á
  • Gistináttagjald

Dagskráin gæti breyst lítillega en það verður þá tilkynnt í upphafi ferðar.

Fararstjórar

Ásta Björk Sveinsdóttir

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu. Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

Guðbjörg Magnúsdóttir

Guðbjörg Magnúsdóttir

Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár. Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar. Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.

Aðrar brottfarir

Þessi ferð er farin

Brottför var 1.–11. apríl 2026 og hópurinn er kominn heim. Dagskráin hér að ofan stendur áfram — hún er sú sem farið var eftir.

Páskar á Sikiley — næsta brottför 24.mars - 5. apríl 2027

Póstlistinn

Við sendum póst þegar nýjar ferðir fara í sölu. Það er eina leiðin til að vera á undan — ferðirnar seljast yfirleitt upp fljótt.

Skrá á póstlista