ferðaskrifstofa 611 8811

Vor á Sikiley

28. apríl – 8. maí 2027

Væntanleg í sölu

Töfrandi blanda náttúrufegurðar, menningar og matar í þessari einstöku ferð. Fararsnið leggur áherslu á að ferðast í litlum hópum og sameiginlegar máltíðir á vel völdum stöðum eru innifaldar í verði. Gisting er valin af kostgæfni og hótel ávallt staðsett miðsvæðis.

Vor á Sikiley

Vikan

11 dagar · Palermo, Siracusa og Giardini Naxos — þrjú hótel, 4–5★ · 10 nætur

  1. 1 Miðvikudagur 28. apríl Flogið til Palermo um Róm
    • 07:50 Brottför með Icelandair til Rómar með flugi FI 562, þar sem við millilendum. Þaðan höldum við áfram til Palermo
    • 18:20 Lending í Palermo. Rúta bíður á flugvellinum og flytur okkur á hótel í hjarta borgarinnar
    • Innritun á Eurostar Hotel Centrale Palace
    • 20:00 Komuskál og kvöldverður á hóteli innifalið
  2. 2 Fimmtudagur 29. apríl Palermo með staðarleiðsögn og götubitar á matarmarkaði
    • Morgunverður á hóteli
    • 09:30 Höldum af stað fótgangandi frá hóteli ásamt staðarleiðsögumanni til að skoða Palermo. Við komum víða við, t.d. í Dómkirkjunni og Palatína kapellunni í höll Normanna (Palazzo dei Normanni) þar sem ólíkir menningarheimar mætast, og skoðum skammarlega gosbrunninn „Fontana della Vergogna“
    • Endum ferðina á líflegum matarmarkaði þar sem við fáum að bragða á nokkrum af vinsælustu götubitum borgarbúa innifalið
    • Síðdegi og kvöldið frjálst
  3. 3 Föstudagur 30. apríl Mósaíkin í Monreale og hafnarbærinn Cefalú
    • Morgunverður á hóteli
    • 09:30 Við tökum stefnuna á bæinn Monreale með viðkomu í hinni stórkostlegu dómkirkju sem geymir einstök mósaíkverk þar sem gotneskur, býsanskur og arabískur stíll renna saman
    • Frá Monreale höldum við áfram til Cefalú, heillandi hafnarbæjar sem valinn var einn af fallegustu bæjum Ítalíu
    • 13:00 Hádegisverður að hætti heimamanna úr hráefni beint úr hafinu, með vatni, víni og kaffi innifalið
    • Frjáls tími í Cefalú eftir hádegisverð
    • 17:30 Áætluð koma heim á hótel. Frjálst kvöld í Palermo
  4. 4 Laugardagur 1. maí Frjáls dagur í Palermo Frjáls
    • Morgunverður á hóteli
    • Frjáls dagur í Palermo
  5. 5 Sunnudagur 2. maí Casale-höllin og flutt yfir á austurströndina
    • Morgunverður og útritun af hóteli
    • 08:00 Þennan dag færum við okkur frá vesturströnd Sikileyjar yfir á austurströndina og endum daginn í Siracusa þar sem við dveljum næstu tvær nætur
    • Stoppum í Piazza Armerina þar sem við hittum leiðsögumann og skoðum Villa Romana del Casale, byggða á 3.–4. öld e.Kr. Höllin lá grafin og gleymd um aldir eftir aurskriðu; við uppgröft komu í ljós einstaklega vel varðveittar mósaíkmyndir sem þekja um 3.500 fm gólfflöt. Á heimsminjaskrá UNESCO frá 1997
    • Frjáls tími til að slaka á og fá hádegishressingu áður en við leggjum af stað til Siracusa
    • 16:30 Innritun á Hótel Ortea Palace 5★ á Ortigia-eyjunni í Siracusa
    • 19:30 Kvöldverður með vatni og víni að hætti heimamanna á veitingastað hótelsins innifalið
  6. 6 Mánudagur 3. maí Siracusa með staðarleiðsögn, svo frjálst
    • 09:00 Hittumst í anddyri hótelsins og göngum af stað með staðarleiðsögumanni sem kynnir okkur fyrir þessari einstöku borg þar sem forn-Grikkir réðu ríkjum öldum saman, og síðar Rómverjar, Arabar og fleiri þjóðir
    • Frjáls dagur og kvöld í Siracusa að því loknu
  7. 7 Þriðjudagur 4. maí Neapolis-fornminjasvæðið og norður til Giardini Naxos
    • Morgunverður og útritun
    • 09:30 Stefnan tekin norður á bóginn til Giardini Naxos þar sem við dveljum næstu fjórar nætur. Áður en við yfirgefum Siracusa stoppum við og skoðum Neapolis-fornminjasvæðið frá tímum Grikkja og Rómverja, þar sem meðal annars má finna einstakar steinnámur
    • 13:00 Hádegisverður innifalið
    • 16:30 Innritun á Delta hótel Giardini Naxos
    • 18:30 Fordrykkur á hótelinu innifalið
    • Kvöldið frjálst
  8. 8 Miðvikudagur 5. maí Taormina og gríska leikhúsið yfir hafinu
    • 09:00 Höldum af stað með rútu til Taormina sem stendur hátt yfir Giardini Naxos. Göngum með staðarleiðsögumanni um bæinn, sem er þekktastur fyrir stórfenglegt grísk-rómverskt útileikhús með ægifögru útsýni til hafs og til Etnu. Í Taormina er margt að sjá, t.d. Corvaja-höllina
    • 13:00 Hádegisverður að hætti heimamanna með vatni, víni og kaffi innifalið
    • Frjáls tími
    • 17:00 Heimferð til baka á hótel. Kvöldið frjálst
  9. 9 Fimmtudagur 6. maí Vínbúgarður í norðurhlíðum Etnu
    • Morgunverður á hóteli
    • 09:30 Höldum með rútu að vínbúgarði í norðurhlíðum Etnu þar sem við kynnumst víngerðinni og bragðum á afurðum sem ræktaðar eru á þessu gjöfula landsvæði
    • Hádegisverður beint frá býli með vatni, víni og kaffi innifalið
    • Kvöldið frjálst
  10. 10 Föstudagur 7. maí Frjáls dagur í Giardini Naxos Frjáls
    • Frjáls dagur þar sem hægt er að slaka á við ströndina eða sundlaugina, fara í siglingu, göngu eða gera það sem hvern langar
  11. 11 Laugardagur 8. maí Heimferð frá Catania
    • Morgunverður á hóteli og útritun
    • 07:00 Rúta á flugvöllinn í Catania
    • 10:15 Flug AZ 1710 til Rómar
    • 15:45 Flug FI 931 til Keflavíkur
    • 18:40 Lending í Keflavík

Hvað býðst þér

  • Gist á 4–5★ hótelum með morgunverði, staðsettum miðsvæðis
  • Morgunflug með Icelandair til Rómar og þaðan til Palermo með Italian Airways, flogið heim frá Catania í gegnum Róm. Farangur innritaður alla leið og íslenskur fararstjóri fer með hópnum frá Íslandi
  • Sælkeramáltíðir á völdum veitingastöðum með drykkjum þar sem við kynnumst matarmenningu hvers svæðis
  • Einstök blanda af sögu, byggingarlist, matarmenningu og náttúrufegurð
  • Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og tækifæri til að eignast nýja félaga
  • Lausar stundir og næði til að njóta að vild
  • Hámark 30 manns í ferð og akstri haldið í lágmarki
  • Allt sem nefnt er í dagskrá er innifalið í verði, nema annars sé getið

Innifalið

  • Flug með Icelandair til/frá Róm og flug með ITA til Palermo og heim frá Catania
  • Skattar og lendingargjöld
  • Innrituð taska (23 kg) og handfarangur
  • Rútuakstur frá og til flugvallar á Sikiley
  • Allur annar rútuakstur samkvæmt dagskrá
  • Gisting á fjögurra og fimm stjörnu hótelum í tíu nætur
  • Morgunverður í tíu daga
  • Tveir kvöldverðir með borðvíni, vatni og kaffi
  • Tvisvar fordrykkur á hóteli
  • Fimm hádegisverðir með borðvíni, vatni og kaffi
  • Heimsókn í vínkjallara
  • Matarmarkaðsrölt með staðarleiðsögumanni og smakk á vinsælustu götubitum Palermóbúa
  • Allar skoðunarferðir sem nefndar eru í dagskrá
  • Aðgöngumiðar í grísk-rómverska leikhúsið í Taormina, Casale-höllina í Piazza Armerina, Neapolis-fornminjasvæðið, dómkirkjuna í Monreale og Palatína kapelluna í Normannahöllinni í Palermo
  • Innlendir leiðsögumenn
  • Íslensk fararstjórn allan tímann

Ekki innifalið

  • Þjórfé þar sem við á
  • Gistináttagjald

Dagskráin gæti breyst lítillega en það verður þá tilkynnt í upphafi ferðar.

Fararstjóri

Guðbjörg Magnúsdóttir

Guðbjörg Magnúsdóttir

Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár. Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar. Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.

Láttu mig vita

Skráðu þig og við sendum póst um leið og ferðin fer í sölu.

Póstlistinn

Við sendum póst þegar nýjar ferðir fara í sölu. Það er eina leiðin til að vera á undan — ferðirnar seljast yfirleitt upp fljótt.

Skrá á póstlista