Skilmálar Fararsniðs
Verð, bókanir, greiðslur og afbókanir — og hvað þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað.
Verð og verðbreytingar
Ferðir Fararsniðs eru í flestum tilfellum sérsniðnar að þörfum farþega og eru háðar eftirfarandi reglum:
Verð ferða er staðgreiðsluverð og er háð gengisskráningu þess dags þegar tilboð er gert, eða ferðin auglýst. Uppgefið verð við staðfestingu pöntunar getur breyst til samræmis við breytingar sem kunna að verða á einum eða fleiri af eftirtöldum þáttum.
- Flutningskostnaði, þar með töldum eldsneytiskostnaði.
- Álögum, sköttum eða sérgreiðslum fyrir tiltekna þjónustu, t.d. lendingargjöld.
- Gengi þess gjaldmiðils sem á við tiltekna ferð.
- Hækkun þjónustu frá erlendum birgjum.
- Ferð sem er að fullu greidd tekur þó ekki slíkum verðbreytingum.
Bókanir
Við bókun er mjög mikilvægt að fram komi eftirfarandi upplýsingar:
Fullt nafn allra þátttakenda, kennitala, heimilis- og/eða netfang og símanúmer.
Staðfesting ferðar:
Til að festa ferðapöntun verður að greiða staðfestingargjald sem er frá 70.000 kr. * fyrir hvern farþega, en getur verið hærri í samræmi við kröfur frá birgjum okkar.
*staðfestingargjald er 120.000 kr. í siglingum og hjólaferðum.
Staðfestingargjaldið er óendurkræft.
Greiðslur
Farþegi getur greitt ferð sína á eftirfarandi tvo vegu:
- Með beinni greiðslu inn á bankareikning Fararsniðs.
- Í gegnum greiðslutengil kortafyrirtækja eða slíkrar þjónustu.
Fullnaðargreiðsla ferðarinnar skal fara fram í síðasta lagi 8 vikum fyrir brottför* nema kröfur birgja okkar, eða útgáfa flugfarseðla geri ráð fyrir lengri tíma.
*í siglingum og hjólaferðum eru þrjár greiðslur. 1. greiðsla við staðfestingu, 2.greiðsla 20 vikum fyrir brottför og lokagreiðsla 10 vikum fyrir brottför.
Afbókanir
Kaupandi getur afbókað* og fengið staðfestingu endurgreidda innan 7 daga frá bókun, þó ekki ef aðeins eru 7 vikur í upphaf ferðar.
- Sé ferð afbókuð þegar 55-28 dagar eru í brottför á kaupandi rétt á 75% endurgreiðslu (staðfestingargjald er óendurgreiðanlegt).
- Sé ferð afbókuð þegar 27-14 dagar eru í brottför á kaupandi rétt á 50% endurgreiðslu (staðfestingargjald er óendurgreiðanlegt).
- Sé ferð afbókuð þegar 13 – 10 dagar eru í brottför, á kaupandi rétt á 25% endurgreiðslu (staðfestingargjald er óendurgreiðanlegt).
- Sé ferð afbókuð þegar færri en 9 dagar eru í brottför á kaupandi ekki rétt á endurgreiðslu
Fararsnið innheimtir þjónustugjöld birgja og áskilur sér rétt til að taka þjónustugjald fyrir sína vinnu.
*í siglingum og hjólaferðum er endurgreiðsla vegna afbókana háð endursölu á sætum ( á það ekki við um staðfestingargjald). Vinsamlegast hafið samband skriflega á bokanir@fararsnid.is ef til afbókana kemur.
Breytingagjald
Fararsnið innheimtir breytingagjald fyrir birgja, ss. óskir um breytta flugdaga einstaklinga.
Tryggingar/ferðatryggingar
Ástæða er fyrir farþega að huga vel að tryggingamálum sínum áður en lagt er upp í langferð. Sé ferð greidd með greiðslukorti a.m.k. að hálfu, fylgir í flestum tilfellum með ókeypis ferðatrygging frá greiðslukortafyrirtæki. Athugið að þessar tryggingar eru afar mismunandi eftir tegund greiðslukorts. Kynnið ykkur vel skilmála, sem finna má í sérprentuðum bæklingum frá greiðslukortafyrirtækjunum.
Veikindi eða slys á ferð erlendis – hvaða rétt átt þú? Bækling þess efnis getur þú nálgast hjá Sjúkratryggingum Íslands. Einnig er hægt að sækja um Evrópskt „sjúkratryggingakort“ hjá Sjúkratryggingum Íslands t.d. á heimasíðu stofnunarinnar, https://island.is/evropska-sjukratryggingakortid
Öllum farþegum í hópa- og einstaklingsferðum Fararsniðs er ráðlagt að kaupa sér forfallatryggingu hjá tryggingafyrirtæki sínu, ef slíkt er ekki innifalið í kreditkorti viðkomandi. Fararsnið sér ekki um sölu ferðatrygginga.
Á landamærum — vegabréf
Gætið vel að gildistíma vegabréfsins fyrir brottför og að það sé ekki útrunnið. Sum lönd krefjast þess að ekki sé styttra en sex mánuðir af gildistíma vegabréfs.
Það er á ábyrgð farþega að gefa upp „nákvæmlega“ sama nafn í bókunarferlinu og það sem ritað er í vegabréf.
Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun til þeirra landa í Evrópu sem Icelandair flýgur til. Til Bandaríkjanna þarf í öllum tilfellum áritun og er nauðsynlegt að huga að því tímanlega. Í sumum ferðum þarf vegabréfsáritun. Leitið ykkur nánari upplýsinga. Öll börn þurfa nú sitt eigið vegabréf.
Bílaleigur
Fararsnið er ekki í samstarfi við eina bílaleigu frekar en aðra. Þó er reynt að aðstoða farþega sem hyggjast ferðast á eigin vegum sé þess óskað t.d. ef framlengt er að lokinni hópferð.
Skilmálarnir voru síðast uppfærðir .
Ef eitthvað er óljóst má alltaf hringja í 611 8811 eða senda póst á bokanir@fararsnid.is.