ferðaskrifstofa 611 8811

Hjólaferð og sigling í Króatíu

9.–16. maí 2026

Uppselt

Króatía er einstök náttúruperla við Adríahafið með yfir þúsund eyjar þar sem 48 eru í byggð. Við siglum á snekkju með rafmagnsreiðhjól í farteskinu, gistum um borð og hjólum á eyjunum. Þessi ferð endar í Dubrovnik.

Hjólaferð og sigling í Króatíu

Vikan

8 dagar · MS Melody — gist um borð, Trogir–Dubrovnik · 7 nætur um borð

  1. 1 Laugardagur 9. maí Um borð í Trogir og stutt fyrsta leið um Brač Supetar – Milna, 21 km Erfiðleikastig 2/5 Brač
    • 12:00 Innritun um borð í MS Melody við höfnina í Trogir
    • 13:00 Fararstjórafundur og kynning. Sigling frá Trogir til eyjunnar Brač
    • Við stoppum í litlum bæ sem heitir Sutivan sem státar af mörgum kaffihúsum. Bærinn á skemmtilega sögu um ketti og má finna kattastyttur víða, t.d. í kirkjuturninum
    • Kvöldverður um borð innifalið
    • Gist við bæinn Milna
  2. 2 Sunnudagur 10. maí Milna til Bol og Gullna hornið Milna – Bol, 52 km Brač
    • 07:30 Morgunverður hefst um borð innifalið
    • 09:00 Hjólaferð hefst í bænum Milna, sem er með öruggustu náttúruhöfnina við Brač
    • 13:00 Hádegisverður beint frá býli, grillmatur ásamt vatni og víni að hætti heimamanna. Ekki innifalinn, 35 EUR
    • Stoppum við ströndina „Gullna hornið“ sem breytir um lögun eftir sjávarstraumum og veðurfari, og fáum tækifæri til að skella okkur í sjóinn
    • Kvöldverður um borð í snekkjunni innifalið
    • Gist við bæinn Bol, þar sem finna má rauðvínsgerðina Stina
  3. 3 Mánudagur 11. maí Hæðir Hvar og kvöld í líflegum bæ Jelsa – Hvar, 32 km Erfiðleikastig 3/5 Hvar
    • 06:30 Siglt til eyjunnar Hvar
    • 07:30 Morgunverður hefst um borð innifalið
    • 09:00 Hjólaferð dagsins hefst. Við stoppum á leiðinni, skoðum okkur um og fáum hressingu, og hendum okkur í sjóinn þegar siglt er í átt að næturstað
    • 13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni innifalið
    • Kvöldverður á eigin vegum. Gist í bænum Hvar, sem er skemmtilegur bær með líflegu mannlífi
  4. 4 Þriðjudagur 12. maí Vis og Komiža, þar sem Mamma Mia 2 var tekin upp Vis – Komiža – Vis, 33 km Erfiðleikastig 3/5 Vis
    • 06:30 Siglt til eyjunnar Vis
    • 07:30 Morgunverður hefst um borð innifalið
    • 09:00 Hjólaferð hefst
    • 13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni innifalið
    • Kvöldverður á eigin vegum. Snekkjan liggur við bryggju þar sem hluti af Mamma Mia 2 var tekinn upp, og á leiðinni til Komiža sjáum við enn hluti sem notaðir voru í myndinni
  5. 5 Miðvikudagur 13. maí Þvert yfir Korčula — litla Dubrovnik Vela Luka – Korčula, 53 km Erfiðleikastig 5/5 Korčula
    • 06:30 Siglt til eyjunnar Korčula
    • 07:30 Morgunverður hefst um borð innifalið
    • 09:00 Hjólaferð hefst
    • 13:00 Hádegisverður um borð innifalið
    • Kvöldverður á eigin vegum. Korčula er oft nefnd litla Dubrovnik enda er gamli bærinn allur innan vel varðveittra borgarmúra, og Marco Polo-áhrifin eru mikil
  6. 6 Fimmtudagur 14. maí Lengsta leiðin, og eyjan með 300.000 ólífutré Pomena – Saplunara – Sobra, 58 km Erfiðleikastig 4/5 Šipan
    • 06:30 Siglt til Šipan
    • 07:30 Morgunverður hefst um borð innifalið
    • 09:00 Lagt af stað í hjólaferð
    • 13:00 Hádegisverður um borð innifalið
    • Kvöldverður um borð innifalið
    • Gist við Šipan. Á eyjunni má finna yfir 300.000 ólífutré og olían skipar stóran sess hjá eyjaskeggjum
  7. 7 Föstudagur 15. maí Léttur hringur um Šipan, svo Dubrovnik Hjólað um Šipan, 12 km Erfiðleikastig 1/5 Šipan
    • 07:30 Morgunverður hefst um borð innifalið
    • 09:00 Lagt af stað í hjólaferð
    • 13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni innifalið
    • Kvöldverður á eigin vegum í Dubrovnik
    • Gist í Dubrovnik, perlu Adríahafsins, sem er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir einstakar byggingar og virki
  8. 8 Laugardagur 16. maí Heimferð Dubrovnik
    • 07:30 Morgunverður hefst um borð og við yfirgefum skipið eigi síðar en kl. 09:00 innifalið
    • Þökkum fyrir góða viku

Hvað býðst þér

  • Sigling frá Trogir á mjög góðri snekkju, MS Melody, með 16 káetum
  • Gist er í þægilegum tveggja manna káetum með salerni og sturtu
  • Hálft fæði á snekkju
  • Rafmagnsreiðhjól til umráða alla ferðina
  • Dagleiðir eru mislangar og tveir dagar miðlungserfiðir
  • Flug er ekki innifalið en Fararsnið getur veitt upplýsingar um heppilegar flugtengingar

Innifalið

  • Sigling í 8 daga, gisting í 7 nætur
  • 7 × morgunverðarhlaðborð
  • 5 × þriggja rétta hádegisverður um borð
  • 2 × þriggja rétta kvöldverður um borð
  • 1 × „Captain's Dinner“ um borð — hvíta kvöldið
  • Leiga á rafmagnshjólum í viku
  • Reyndir leiðsögumenn í öllum hjólaferðum
  • Vatn og kruðerí alla daga um borð
  • Frítt internet

Ekki innifalið

  • Flug til og frá Króatíu
  • Gisting fyrir og eftir siglingu
  • Gistináttagjald, 50 EUR á mann
  • Drykkir um borð (ekki er heimilt að neyta eigin drykkja í matsal og á útidekki)
  • Þjórfé um borð í lok ferðar fyrir áhöfn og hjólaleiðsögumenn
  • Hádegisverður beint frá býli, 35 EUR

Annað

  • Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum
  • Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þátttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna
  • Athugið hvort þið eigið evrópskt sjúkratryggingakort í gildi; ef ekki þarf að sækja um það með góðum fyrirvara

Einhverjar tímasetningar gætu hnikast til og þá tilkynnum við það í upphafi ferðar.

Fararstjóri

Ásta Björk Sveinsdóttir

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu. Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

Aðrar brottfarir

Þessi ferð er farin

Brottför var 9.–16. maí 2026 og hópurinn er kominn heim. Dagskráin hér að ofan stendur áfram — hún er sú sem farið var eftir.

Ferðirnar sem eru í boði núna Á póstlistann

Póstlistinn

Við sendum póst þegar nýjar ferðir fara í sölu. Það er eina leiðin til að vera á undan — ferðirnar seljast yfirleitt upp fljótt.

Skrá á póstlista